Edda Barcelonabúi
Myndir
Ýmislegt gagnlegt
08.09.2006 10:53:12 / eddaarndal

Barcelona Beibí !!

Jæja...fyrsta  bloggið í nýju landi. Allt búið að ganga eins og í sögu....strax búin að vera í viku...held að tíminn hérna ganga 100x hraðar en heima, reyndar búið að vera nóg að gera að stússast í hinu og þessu.

 

Íbúðin okkar er GEÐVEIKISLEGA flott......er með huges rúm....vei...eitthvað annað en heima......það er eitthvað svakahönk sem á íbúðina...ýkt frægur Tenór hérna á Spáni og það er fullt af verðlaunum frá honum hérna í íbúðinni.....hann er fluttur til Madrid því þar fær hann meiri athygli, ljósmyndara og soleiðis...það er víst ekki soleiðis hérna í Barcelona.

 

Kíkti á djammið á laugardaginn.....fyndið....rifjar bara upp gamla tíma á Benidorm  (ekki slæmt J )...............fyrir utun geðveikislega mikinn hita....maður er alveg jafn sveittur og tussulegur eftir að hafa farið í sturtu....svo er svakaleg brekkan frá lestarstöðinni og heim....hún er ROSALEGA  löng og sveitt á leiðinni heim.

.....við ferðumst bara með Metrokerfinu hérna...sem er algjör snilld....mjög þægilegt og einfalt svona þegar maður er búin að læra á það almennilega......er reyndar enn soldið slæm í að rata....finnst allar götur eins hérna.......en talandi um GEÐVEIKISLEGA flott hús....allt ógeðslega flott......hægt að skoða alveg endalaust.....

 

...byrjaði í spænskuskólanum á mánudaginn......lenti með Sigrúnu og Árna í bekk....ég og Sigrún tókum svo stöðupróf á miðvikudaginn og fengum að færa okkur áfam um viku.....skil ekki rassgat núna en maður hlýtur að læra betur þar heldur en í hinum tímunum.....sleppti reyndar spænskuskólanum í dag...........fyrsta skipti sem ég næ að sofa almennilega útaf hita og soleiðis...........ætla bara að vera duglega að læra um helgina svona á milli þess sem ég djamma J

 

.....klára spænskuskólann 29. sept......og þá tekur við 2 vikna námskeið í IED (Istituto skólinn)...svo smáfrí og IED byrar 30.október....maður kannski notar fríið til að vera í sólbaði ....ummmm......er búin að hafa voðalítinn tíma til þess hingað til.

 

...verð heima í allan dag þar sem það eru e-r viðgerðakallar að koma og laga hjá okkur hitt og þetta........verð líka að reyna að redda netinu heim.....svona svo maður geti notað skype.

 

...og já...fyrir ykkur stelpurnar sem viljið koma í heimsókn þá er ENDALAUST mikið af búðum, H&M, ZARA, Mango, Topshop, Berska og endalaust mikið meir....geðveikar búðir...gætuð alveg misst ykkur.

 

...en jæja...ætla ekki að hafa þetta lengra svo einhver nenni að lesa þetta J

 

...er ekki enn komin með myndavél þannig að þið verðið að bíða fram í nóvember eftir myndum ;(

 

Hasta luego

 

 

 

 



 


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.03.2005 10:56:02 / eddaarndal

Þó líði ár og öld......

 Ég er bara mætt aftur, rétt að rifja upp hvernig allt þetta virkar, verð nú að reyna að vera aktív þar sem að ný tölva er á leiðinni á heimilið.

Er í skólanum í Listir & Menning og varð að finna mér eitthvað sniðugt að gera, páskarnir búnir að vera rosagóðir, djammið kannski búið að vera aðeins of mikið miðað við fjárhag minn, en ég meina, það eru nú bara páskar einu sinni á ári :)

Aðalumræðurnar í dag hjá mér og Ellu gellu er hvað í ósköpunum við getum gert af okkur í sumar, getum ekki sleppt Þjóðhátið, að sjálfsögðu ekki en við vorum svona að spá í að skella okkur til Lúxemborgar svona til að rifja upp gamla tíma og að sjálfsögðu til að versla, þarf nú varla að taka það fram. Elín kom svo með þá snilldarhugmynd að fara í Interrail, ég sá bara fyrir mér skítugt hár og dósamat, ég get nú ekki sagt að ég sé sú týpa sem getur labbað framhjá McDonalds með góðu móti, þar sem mér finnst svo rosalega gott að borða.

Jæja nenni ekki að blaðra meir, reyni að byrja að vera dugleg aftur :)

Þangað til næst

Eddie


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.06.2004 22:20:07 / eddaarndal

Jiiii...loksins drullast ég að skrifa ;)

MOEIN!!!

Maður er bara komin í gömlu lummuna aftur, vinna og vinna, svo er maður að vinna svo fjandi lengi að dagurinn er algjörlega búin þannig að maður er að missa af þessu súper veðri hérna. Voðalítið að frétta, er búin að vera í þvílíku chilli síðan ég kom heim, skrapp í sveitina og soleiðis rugl, búin að djamma báðar helgarnar síðan ég kom heim og nú ætla ég að taka mér pásu um næstu helgi. Unnur skvísa er loksins komin heim frá sukkinu á Benidorm þannig að ég ætla að fara að draga hana með mér eitthvað um helgina.

Var að kíkja á bloggið hennar Helgu áðan og það er víst bara kuldi og læti í Afríkunni. Vá mig langar svo að vera áfram í útlöndunum að það hálfa væri nóg, væri svo mikið til í eitt Didj djamm með perunum að það hálfa væri nóg en neineinei....allur peningur gufaður upp og mínusinn verður æ þykkari, ætla nú samt að fara að redda mér fari til eyja bráðlega, það verður mín utanlandsreisa þetta árið.....

...ætla ekki að drepa ykkur úr leiðndum, vona að það líði ekki alveg eins langt og síðast, maður nennir bara ekkert að hanga í tölvunni hérna heima á klakanum, alltaf nóg að gera.

Adí !!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2004 20:11:41 / eddaarndal

Loksins....loksins

Loksins meir :D, er búin að vera svo busy síðan ég kom heim á föstudaginn, brjálað að gera í sociallífinu....sorry Elín mín...ég skal vera dugleg :$. Það gengur engin helvítis leti!! Haldin var grillveisla á föstudagskvöldið og grillað var íslenskt lambeköd og VÁÁÁ það var svo gott, amma og afi komu semsagt í mat, svo fór kvöldið í að sýna fólkinu öll fötin og SHIT hvað ég gerði mér ekki alveg grein fyrir því hvað þetta var helvíti mikið.

Helgin var djamm að sjálfsögðu en bara eitt kvöld núna :haha:. Fór á ball með Á móti sól á Flúðum og þar var bullandi stemning, hittum marga og rosastuð. Ég, Begga, Gunna og Siggi fórum á ballið, hittum Árna, Völu og fleiri, heavy gaman að sjá alla aftur. Ég fór síðan galvösk í fermingu á sunnudeginum (toppiði það að ég fór meira að segja í messu, en var eitthvað glær og meikaði ekki alla messuna :^)), heilsan hinsvegar lagaðist þegar ég kom í veisluna og fann þessa dýrindismatarlykt, át yfir mig, er orðin ansi hrædd um að dýru, nýju buxurnar passi ekki mikið lengur í viðbót :evil:. Var síðan bara veik, kvef, hiti og það ógeð, fór samt með krökkunum útí Nesey í útilegu, svakakósi....ekkert djamm...maður er orðinn svo stabíll.

...Kom heim á mánudaginn og raðaði í fataskápinn, er semsagt búin að bæta soldið í hann. Svo var það bara vinnan í dag og nú er lífið komið í sama gamla farið, bara vinna vinna vinna...engin lúxus lengur...en það er nú samt alltaf voðagott að koma heim. Ætla að láta þetta duga í bili, Begga er komin til mín og við ætlum að fara að glápa á dvd mynd sem Kári lánaði okkur og ætlum að búa til voðagott Nachos....reyni að vera dugleg að skrifa á næstunni...

 ...adí!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.05.2004 12:06:09 / eddaarndal

MOEIN!!!

Hallóha

...er enn í chillinu og kem mér bara ekki úr náttfötunum. Ég svaf til tíu en komst ekki framúr fyrr en ellefu, er ekki búin að afreka neitt síðan þá og núna er klukkan tvö. Komst reyndar að því að ég er algjör snillingur og er búin að týna passanum mínum eða þá að ég sendi hann heim í töskunni minni sem Tryggvi fór með til Íslands í gær, já til hamingju með það!! Mér var svo troðið í Íslendingaflugið á föstudaginn þannig að nú kemst ég með fleiri kíló heim (gleði gleði :haha:) og get verið samfó Guðnýju og krökkunum, ég er semsagt alveg að koma heim, bara eftir oggupons. Djammið stoppar greinilega ekkert þegar maður fer heim því að það er búið að plana Neseyjarferð á næsta sunnudag, þvílík snilld.

Jæja maður ætti kannski að drulla sér í föt svona hvað og hverju...ætla samt bara að chilla í allan dag því að svo er sexytime, við perurnar erum að fara fínt útað borða og svo kíkja á smá pubbarölt, því að þetta er seinasta kvöldið okkar allra saman (uhuhuhuh...ekki gaman, á eftir að sakna þeirra SVOOOO mikið :frown:), Stína er að fara til Costa del Sol á morgun, eða meira sona í nótt.

Nenni ekki meir í bili....see ya soon...svo verðið þið gellurnar nú að koma í heimsókn til mín UM LEIÐ og ég kem og sjá öll nýju fötin, er nebblega aðeins búin að missa mig eins og áður hefur komið fram :D.

adí!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2004 17:19:28 / eddaarndal

Leti og eyðsludagur !!

Við Kristín fórum í heimsókn til Elínar í Leudelange í gær, hún var að passa og við redduðum félagsskapnum, ég talaði í símann fyrir allan peninginn, Begga gella hringdi og mamma og pabbi, við horfðum síðan á imbann og ég og Stína sofnuðum báðar, ekki semsagt mikil skemmtun í okkur ;). Náðum að drulla okkur heim og ég var komin í bólið klukkan rúmlega eitt. ....ákvað að stilla ekki klukkuna því að ég hélt að ég mundi nú vakna um tíu en neinei mín bara vaknaði klukkan hálfeitt, drullumygluð, fór niður og át, fór í sturtu. Síðan fórum við Guðný, Rósa og Brynja í Belle Etoile (the mall in Strassen) og ég náði að sjálfsögðu að kaupa mér eitthvað. Við komum svo heim klukkan fjögur og ég fékk bílinn, ég semsagt var að kaupa mér buxur uppá 15000 krónur og fleira getum við sagt, er núna hætt :haha: er alveg að tapa mér hérna, er samt bara eyða svo að ég þurfi ekki að eyða heima, ég er nú alltaf svo séð þið skiljið mig :haha:. ....Voðalítið planað í kvöld, þarf að pakka niður því að Tryggvi er að fara á klakann á morgun og hann ætlar að reyna að koma einhverju drasli frá mér með sér, ég er náttúrlega bara með alveg sjúklega mikið. Ætla að láta þetta duga í bili, er að fara að reima nýju skóna mína soldið töff....já ég semsagt keypti mér líka skó í dag 8|. adí!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2004 12:13:47 / eddaarndal

Helgin mikla....þetta var alveg rosalegt!!

Mæ ó mæ...hvar ætti ég að byrja, þetta er allt búið að renna saman í eytt, var svona svipað og Britney helgin, meira sona dagur en helgi. Ég skal bara reyna að segja þetta í réttri röð.

Föstudagurinn

Ég fékk að sofa út og það var like heaven, fór svo í Cactus með Guðnýju og Brynju (bróðir hans Tryggva er í heimsókn, Brynja er konan hans og þau eru með 3 börn), þær voru að versla í matinn. Eftir þá ferð fékk ég bílinn og náði í Elínu, haldið var niðrí bæ og kortið straujað villt og galið, keypti mér: jakka, náttbuxur, tvo djammboli, skó, einn hlýrabol og ábyggilega eitthvað meira. Við Elín borðuðum svo saman, ætluðum að vera chillaðar um kvöldið, ég á bíl og soleiðis, fórum á Cat club og þar fékk Elín sér cockteil og við urðum bara veikar í djamm, þetta var sona skyndiákvörðun og allt var sett í botn, bílnum var skilað, skipt var yfir í gelluföt, hringt var á taxa og þetta var sona let´s go kýlum áða móment :haha:. Við fengum taxa og byrjuðum á The Elevator, við vorum engan veginn að fýla okkur þar, fengum okkur nú samt tvö glös á barnum, ógeðslegir gaurar, eltu okkur og reyndu að pikka okkur upp með því að blása framan í okkur sígarettureyk (vá, við luggum bara killiflatar ;)), drifum okkur á Light bar, alltof troðið, fórum á Marx bar og þar var ennþá meira troðið, drifum okkur Atmosphere en þar var Elínu skipað að fara úr jakkanum (WHY?), fórum þaðan og á karókíbar með rónunum, þar fengum við allavega sæti við barinn. Eftir þetta var stefnan tekin á Didjeridoo (of course, our place), á leiðinni þangað brotnaði hællinn hennar Elínar og við chilluðum á Shell og biðum eftir leigubíl, þar var mér boðið í kaffi af einhverjum gaur, hann spurði hvort ég vildi drekka kaffi hjá systur hans með honum, ég sagðist bara ekki drekka kaffi. En hvað er málið með glataðar hözzlaðferðir hérna í Lúxembourg? mar bara hreinlega spyr sig. 8) Eftir skóskiptingu fríkuðum við út á dansgólfinu og við erum að tala um ALLT dansgólfið, þar voru vel lyktandi dúddar og fleira í þeim dúr, ég var svo komin heim um sexleytið. Ég bið Leudelange fólkið afsökunar á símhringingum :S.

 Laugardagur...ha!!

Vaknaði klukkan 10 í brjáluðum símafíling, vakti Elínu, Jökul, Axel, Oddgeir og spurði Gunnu hvað hún væri að gera (hún var rosalega mikið að fara að útskrifast, ég er svo minnug þið skiljið :^)). Talaði í símann til eitt og þá kom Elín og sótti mig, við chilluðum yfir Friends hjá Jökli til hálfsjö, alveg sauðslakar með samfarahnakka (frankfurtdjók), þar var ýmislegt látið flakka...Já Jökull þú heldur kjafti...annars er perunum að mæta :klikk:. Haldið var svo til Leudelange og við fórum í djammdressið, sóttum svo Kolbrúnu og við héldum enn á ný til Jökuls þar sem við vorum á bílnum hans, vorum ekkert voðalega hress, vorum næstum öll sofnuð klukkan tólf en þá fékk Elín vítamínssprautu í rassgatið og við pöntuðum taxa, erum eftir helgina komnar með Jose sem einkadriver, hann gefur okkur alltaf geðveikan afslátt þar sem við erum svo æðislegar. Við brunuðum á Cat club og hittum þar Lilju (perumamma hennar Elínar), Lovísu (systur hennar) og Hebu, við héngum með þeim allan tíman og færðum okkur yfir á Atelier eftir lokun á Catclub, þar var drukkið og dansað alveg þangað til við sáum hálfnaktar gellur dansa uppá palli, tókum hneykslissvipinn á þær og fórum út, það er bara Didjeridoo sem rúlar. Við redduðum okkur fari niður á Didj, þar tókum við Kolbrún flippið á dansgólfinu, tókum látbragðsdansinn hennar Kristínar, það var hlegið allt í kringum okkur, við vorum algjör snilld, Elín týndi okkur og sat bara eins og hefðarfrú á barnum með cockteil meðan við Kolla eipuðum. Fórum að sjálfsögðu ekki út fyrr en lokaði (like always), það semsagt lokar klukkan fimm, spjölluðum við fullt af strákum, held bara að við höfum aldrei spjallað við stelpur þar sem þeim er ekki alveg að lítast á okkur, við fáum alltaf bara einhver geðveikisleg look , æji við erum náttúrlega svo sætar þið skiljið :D. Kvöldið endaði semsagt þannig að við fórum með honum Samuel í chill heima hjá vini hans, þeir voru þrír, enduðum semsagt í partýi í Bertrange, geri aðrir betur, vorum komnar heim til Elínar klukkan sjö. Vinur hans ætlaði eitthvað að sussa á okkur þar sem við töluðum fullhátt miðað við að klukkan var 6 í fjölbýlishúsi og hann sagði, speak slowly, vá við náttúrlega bara misstum okkur úr hlátri og fórum að sjálfsögðu að tala very hægt, hann semsagt var ekki betri í ensku en þetta :haha:.

Sunnudagur!!

VÁÁÁÁ...held bara að ég hafi sjaldnast verið jafnþreytt, við semsagt náðum að djamma fjóru sinnum á níu dögum, það er snilld, svona góður lokapunktur. Við vöknuðum klukkan tólf, fórum upp eins og vofur og Stjáni eldaði handa okkur hamborgara og við átum og sváfum svo frá tvö til sex, hoppuðum í sturtu, lífguðum okkur aðeins við, ætluðum í bíó en svo þurfti ég að passa. Fórum því og keyptum fullt af nammi og svo Subway to go, hittum Lovísu á Subway, rifjuðum upp djammið og hlógum eins og vitleysingar. Ég var semsagt með fimm börn í gærkvöldi og Elín hjálpaði til (by the way...takk ezkan), þau komu heim um hálf eitt og við Elin horfðum á Love actually og ég var svo farin að sofa klukkan tvö.

Mánudagurinn mikli....

Svaf til tíu, er enn þreytt, er að sjá um the babies, mín babies semsagt, koma þeim í skólann og soleiðis, núna er pása og ég blogga bara, veit ekki hvað ég geri í kvöld bara eflaust eitthvað rólegt svona miðað við atburði helgarinnar, Kristín kom heim í morgun þannig að við eigum ábyggilega eftir að hitta hana.

Núna fer að styttast í heimkomu, ætla að panta far heim í kvöld, stefnan er tekin á næsta sunnudag, ætla bara að sjá hvað er laust.......nú er þetta búið í bili....see ya soon ...adí!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2004 10:09:57 / eddaarndal

Mojen!!

Nú er fólkið mitt komið heim....ég sótti þau útá völl klukkan tíu og haldiði að mín hafi ekki bara fengið pumaskó (Geggjað flottir), jú og pumasokka og victoria´s secret scrub eitthvað (gasalega góð lykt). Við Guðný fórum að ná í krakkana, ég fór með til að testa skóna flottu og nú erum við að fara að borða, svo er restin óráðin. Mig langar nú soldið í bæinn að strauja kortið mitt aðeins svona í tilefni nýs kortatímabils :haha: og svo væri náttúrlega bara gott ef maður gæti fundið sér flott djammföt fyrir helgina, ég og Elín ætlum nebblega AÐEINS að sletta úr klaufunum í kvöld eða á morgun, hún Kristín beib beilar á okkur þar sem hún er að fara til London í helgarferð, lucky bitch ;).

Ég klára restina seinna, ábbyggilega ekki fyrr en á morgun þannig bara góða helgi og djammið nú almennilega (sona eins og ég mundi gera ;))

adí!!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2004 20:00:01 / eddaarndal

WAAAZZup!!

Þetta er búið að vera svo næs dagur að það hálfa væri nóg. Við Kjartan sváfum út og fórum framúr klukkan hálfellefu, við fórum svo eftir hádegi til Ehnen og þar var alveg fullt af íslendingum sem hittust og grilluðu og höfðu það gott í sólinni. Ég þurfti nebblega að ná í Rósu þangað og sem betur fer var Elín þar líka því annars hefði ég ekki þekkt neinn. Það var aftur alveg geggjað veður og þarna chilluðum við til rúmlega fimm. Skutleríið tók svo við, ég sótti ferðabarnarúm til Brands og Önnu, skiluðum dvd, skutlaði krökkunum heim og svo fór ég tvær ferðir frá lestarstöðinni og heim því að bróðir hans Tryggva og familían hans voru að koma með lest frá Frankfurt, þau verða í heimsókn í viku. Er núna búin að koma the kids í rúmið og ætla að chilla fyrir framan imbann.... ...tjátjá....vá ég trúi ekki að ég sé að fara að koma heim......gaman gaman að hitta alla aftur....en adi!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2004 20:44:23 / eddaarndal

Hér koma seinustu tveir dagarnir....voðaspennó ;)

Fyrst er það þriðjudagurinn, Rósa var aftur veik heima þannig að þetta var allt frekar easy. Búið að vera geðveikur hiti, fórum útá róló í Junglinster og höfðum þar perusamkomu, vorum með alveg fullt af börnum og við lágum bara og sóluðum okkur, brann bara og læti. Kíktum svo á phonyhesta og krakkarnir fengu að prufa, ég tók síðan aukabarn með mér heim (semsagt hana Kristínu litlu) og gaf henni að borða ;). Hún var í heimsókn allt kvöldið og við horfðum á einhverja gelgjumynd, maður fær aldrei leið á þessum ruglmyndum sem maður veit hvernig enda áður en maður setur þær í, kannski bara af því að maður er ennþá soddan gelgja :lol:. Ég fór svo að sofa um tólf og síðan ekki söguna meir.

Jæja...miðvikudagurinn mikli...ég er búin að afreka svo mikið í dag að þið eigið ekki eftir að trúa mér. Fór EKKI aftur að sofa heldur var ég komin með kústinn í hönd klukkan átta og var svo búin að þrífa allt húsið hátt og lágt klukkan eitt, geri aðrir betur...það er svo mikill dugnaður í manni hérna í lúxinu. Eftir að krakkarnir fóru aftur í skólann fór ég í bæinn, náði að sjálfsögðu að versla, keypti rauðan sumarkjól (gasalega krúttlegur), hvítt pils, bleikan hlírabol og svo nærfatasett. Þetta náði ég að gera á klukkutíma en hún Ella gella náði að eyða svipuðu á korteri, hún nebblega kom til mín í búðina og hitti mig smá, svona rétt til að láta mig borga ;). Það var svo hrikalega mikill hiti að við fórum bara útí garð eftir skóla við krakkarnir og átum og sóluðum okkur, ég var komin inn rúmlega sex. Nú er ég búin flytja allt mitt hafurtask upp á 3.hæð og þar bý ég það sem eftir er dvalarinnar (djúpt,ha!) því að það er að koma 5 manna fjölskylda í heimsókn og þau fá að hafa neðstu hæðina. Eftir flutninginn var matur og svo kíkti Elín í smá heimsókn, hún er semsagt rokin til Kristínar núna og þær ætla að kíkja á lífið niðrí bæ þar sem það er miðvikudagskvöld og frí allstaðar á morgun. Ég bara chilla heima og snúllast í tölvunni, Rósa fer og gistir hjá Emilíu þannig að þetta verður voðaeasy á morgun.

Nenni ekki að hafa þetta lengra núna, ætla að gera kósí uppí herbergi og fara svo bara að sofa því að ég er búin að vera á fullu í allan dag......

.....adi!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2004 14:49:20 / eddaarndal

Britneyhelgin mikla !!

WARNING: náið ykkur í popp og kók þar sem þetta er soldið langt :) Mæ ó mæ.....þetta var held ég bara sú allra mesta SNILLDARHELGI sem ég veit um. Ég verð nú að segja ykkur svona það sem alþjóð má vita ;) og ekki dropa meir, hitt er geymt hérna í lúxinni. Fimmtudagurinn var relaxídei...fékk að sofa út því að Guðný kom heim á miðvikudagskvöldið, fór aðeins í cactus og kaupa svona smá drasl fyrir Britney helgina. Perufjölskyldin fór svo saman út að borða á Chi chi’s niðrí bæ, gasalega gott. Ég var svo fengin til að passa hjá öðrum íslendingum um kvöldið og Elín kom til mín og við grenjuðum yfir nýjustu Friendsþáttunum, við héldum svo heim á leið og ég henti í tösku og fór að sofa, alveg í fíling dauðans. (Hafði fimmtudaginn með svo að ég væri ekki þekkt fyrir að dissa þetta blogg mitt, er ekki í voðamiklum skrififíling af sökum þreytu en ég læt mig hafa þetta svona í tilefni nördanna :haha:. Brottför frá Bridel 8:00, Guðný keyrði okkur niðrá Gare og við hlupum í lestina, misstum næstum af lestinni, ég þurfti nebblega að hlaupa og ná í timetable og Kristín bara sagði lestarmanninum að bíða og stóð bara fyrir honum svo að hann kæmist ekki í lestina, ég kom svo móð og másandi með fokkin planið og við semsagt náðum lestinni, þá tók bara við eintóm gleði 8). Lestarferðin gekk alveg þrusuvel, þurftum að skipta 3svar um lest og ég hugsa bara að ef okkur vantar vinnu hérna úti þá eigum við góða möguleika á að verða lestardúddar þar sem við erum svo sjóaðar í svona lestum ;). Lentum í Frankfurt klukkan 2 og tókum leigubíl, byrjaði reyndar ekki vel, hann keyrði okkur niðrí bæ og þar löbbuðum við inná HEAVY flott hótel, helvítis taxikallinn keyrði okkur vitlaust, við komumst að lokum á hótelið okkar, en þar töpuðum við einum góðum buxum í óþarfa taxa. Vorum í góða herbergi, fengum okkur að éta á makkaranum og svo sexytime. Loksins var Britney tíminn kominn, VÚHÚ, gleðigleði.....hún var náttúrlega BARA svöl, heavy troðningur á tónleikunum, mér var ýtt og einhver gella reif í hárið á Elínu, við semsagt vorum soldið mikið að reyna að komast framar. Kristín tók mig á háhest í smá stund (kraftakerling hún Stína), ég týndi reyndar skónum mínum þannig að ég tjúttaði á tám og einum skó, bara fyndið. Kristín komst fremst en ég og elín gáfumst upp og bökkuðum aðeins, sona soldið mikið í áttina að barnum :klikk:. Eftir tónleikana fundum við skóinn, hversu litlar líkur voru á því but I´m a lucky bitch. Eftir tónleikana vorum við voðalítið til í að hætta þannig að við fórum á Salsaclub, snobbstað sem heitir Living (n.b. okkur var neitaður aðgangur á laugardagskvöldinu þar sem við vorum ekki nógu fínar), fórum á hótelbar með einhverjum rússum og þeir blæddu bara hægri vinstri, eftir það var haldið á diskó sem heitir Cooky’s og enduðum svo heima um hálfátta. Heavy gaman.....lendum alltaf í einhverju fáránlega, flöskustútur...hvað er það...segi ekki meir ;). Jæja laugardagur þreytunnar, ég og Kristín fórum í morgunmat eins og alvöru karlmenn, svo tókum við skutlurnar skutluna frá hótelinu (það er semsagt sona shuttle bus) og á flugvöllinn, áttum nebblega tíma í strípur og klippingu klukkan ellefu, við fórum voðamikið semsagt allar saman í klippingu, það var eins og við værum að láta lífið í stólunum þarna, frekar fyndið, svo fannst öllu starfsfólkinu heavy fyndið að við hefðum verið á Britney og jú líka að ég týndi skónum, það var semsagt voðamikil kátina á flugvellinum í Frankfurt. Við þekkju flugvöllinn inn og út þar sem við vorum á hóteli rétt hjá vellinum. Við fórum á KFC (ummm....það var ÆÐISLEGA gasalega gott) og svo smá rúnt í bænum, ég keypti mér ekki neitt, var sona eins og kallarnir og beið fyrir utan eða í einhverjum stólum, var bara voðalítið að nenna að versla. Komum heim um sex og sváfum frá hálfsjö til hálfníu, gerðum okkur svo til og kveiktum á eurovision. Drifum okkur í stemninguna niðrí bæ, í schlassenhausen (sona barhverfi, fullt af fólki og böms af fótboltaaðdáendum, það var leikur um daginn, frankfurt eitthvað), var svo troðið inná eurovisionbarnum að við dissuðum hann Jónsa, hittum þá Joshua og Erin (n.b. strákanafn) frá benndarjíkjunum, jú og einn soldið eftirá gæa frá Manchester, héngum með þeim allan tímann, semsagt frá níu og til sona átta getum við sagt ;). Við lærðum það nýjasta til að vera hip og cool í bandaríkjunum, rock on dude og allt í soleiðis gír. Þetta voru bara snilldargaurar, þeir voru semsagt á mánaðarferðalagi um Þýskaland og löndin í kring. Þeir fóru til Vín í Austurríki á sunnudeginum ef þeir hafa meikað það, við semsagt kenndum þeim að djamma eins og alvöru íslendingar og þeir bíða þess eflaust aldrei bætur. (djúpt..ha!!). Jæja.....lokadagurinn...ég og Stína fórum aftur í morgunmatinn en alltaf var Elín sú lata og hékk undir sæng, svo aftur að sofa, við vorum vaktar um tólf og það semsagt átti að tjékka út klukkan tólf...við vorum voðalítið með það á hreinu. Vorum ready klukkan hálfeitt og þá tók við ferðalag dauðans, vorum í einhverju rugli, misstum af lestum og soleiðis fílingur í gangi, sáum dverg á hlaupahjóli (gerist ekki fyndnara), klístraða gaura, hermann með heavy hreyfingar, það var semsagt allskonar fólk í lestunum og á lestarstöðunum. Hittum t.d. eitthvað fullt af gaurum og einn af þeim var kærasti einhverrar íslenskrar stelpu frá Hafnarfirði, algjör tilviljun, það vakti soldið mikla lukku, Kristín fór líka alveg á kostum, dón vörrí abárit. Komum heim klukkan níu, ég fór þá útá flugvöll að ná í bílinn því að Guðný og Tryggvi eru í NY og ég er ein með börnin framá föstudag, var heavy lengi að finna bílinn, endaði með því að stöðumælavörðurinn hjálpaði mér, ég vissikki neitt. Sótti krakkana í pössun og allir sofnaðir klukkan hálfellefu nema ég, ég talaði í símann til hálf eitt, svona að segja fólki fréttirnar. Svona hversu vel við kynntumst Rússlandi og Ameríku í Frankfurt....múhahah....ekki allir jafn sjóaðir í þeim efnum..segi ekki meir. Nú er voðamikill mánudagur, Rósa er veik heima, 24 stiga hiti, og við höngum inni, er búin að vera að shæna smá, ætla svo að koma liðinu snemma í háttinn og fara sjálf heavy snemma að sofa og ná úr mér þreytu helgarinnar, getum nebblega sagt að Frankfurt hafi verið sona dagsferð en ekki helgarferð þar sem það var voðalega lítið sofið. Þetta eru bara margar blaðsíður, bara hope you have enjoyed my darlings.....adi!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.05.2004 13:01:25 / eddaarndal

Miðvikudagur í chilli

 Ég gleymdi þriðjudeginum þar sem ég hafði fullt að gera í gær, var með bílinn og eftir hádegi fórum við Kristín með börnin okkar í Eifelpark í Þýskalandi, lögðum af stað í þrusugóðu veðri en haldiði að hafi ekki bara komið þrumuveður dauðans og við vorum búin að vera svona 20 mínútur þegar kom mesta rigning í heimi. Öllum tækjum var lokað og þessi ferð sökkaði eiginlega bara soldið hryllilega mikið. Borðaði Pizza Hut í kvöldmatinn (eins og sumir hafa heyrt mig segja áður :) ), svo fórum við Elín í bíó og smá rúnt um kvöldið, aumingja Kristín var veik heima. Við fórum á einhverja mynd sem heitir Twisted og hún var bara alveg drullugóð, það voru ýkt fáir í bíó og án gríns þá voru þetta BARA pör, ég og Elín vorum svona að pæla í að leiðast út eða eitthvað álíka, því að öll pörin voru eitthvað svo ástfangin, jakk við ældum næstum á þau. Þetta var samt bara soldið fyndið...við vorum bara öfundsjúkar held ég :^).

Okey...núna kommer dagurinn í dag....er í chillinu núna, fór aftur að sofa í morgun, allt hreint og fínt hjá mér, Guðný kemur heim annað hvort í dag eða á morgun og þá fæ ég smá pásu. Er líka að fara á Britney um helgina og það verður bara eintóm SNILLD :haha: get ekki beðið. Ég er svo að passa alla næstu viku því að Guðný og Tryggvi eru að fara til New York og ég verð ein heima með börnin, þetta er þá eiginlega búið að vera soldið löng síðasta törn, semsagt 5 vikur en ok samt ;)

Jæja nú eru þið komið með planið mitt...rosastuð :haha:

addie!


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2004 16:10:08 / eddaarndal

Moooojen!!!

Okey...helgin var rosalega plönuð hjá mér og átti að vera sparnaðarhelgi en neinei...það er aldrei að vita hvað okkur dettur í hug....við perurnar ásamt Jökli fórum semsagt til Trier á djammið og Elín bus var dreiverinn. Lögðum af stað um hálftólf (ég semsagt þurfti ekki að passa og hvað gerir maður þá annað en að djamma ;) ). Skunduðum niðrí miðbæ Trier og fundum þar Caoyte Cafe og chilluðum þar, svona í mismunandi fíling skulum við segja 8)

. .....Sátum þar inni til tvö og við spurðum um diskótek eins og okkur einum er lagið og þau voru öll í hinum endanum á bænum þannig að við bara beiluðum á þeim og héldum heim á leið, var komin heim um rúmlega 3, þetta djamm semsagt sökkaði soldið mikið, en við fórum þó til Trier, fengum nóg af ljósum og sýnishorn af röri :)

...svaf fram að hádegi á sunnudeginum og Kristín sótti mig um tvö og við djúsararnir hittumst öll á Subway í þynnkumat eins og maður gerir heima á klakanum (vantar bara KFC hérna, já og auðvitað dominos...umm get ekki beðið eftir að fá smá tucky heima). Náðum að eyða svona 2 tímum á Subway í einhverju þynnkustuði og héldum svo yfir í Stargate og keyptum okkur cd með fullt af lögum sem eru spiluð og Didjeridoo...algjör sniilld!!

Eftir subway fórum við perurnar fjórar til Kristínar því hún þurfti að passa (Jökull gafst upp á gelgjulátunum í okkur), pöntuðum okkur pizzu og chilluðum í einhverja 7 tíma fyrir framan sky-ið hennar Kristínar...rosakósí kvöld, svona ekta sunnudagur í liðinu. Kristín var síðan svo elskuleg að koma okkur heim eftir mikið stríð við bensínsjálfsalann og ég var komin undir sæng rúmlega eitt og var frekar þreytt. ...nenni ekki að hafa þetta lengra, fór aftur að sofa í morgun og tók svo til allt húsið...nenni svo ekki að gera neitt í kvöld...er ýkt ógeðsleg og mygluð og ætla bara að imbast eitthvað tonight....

...addie!!! :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2004 11:17:30 / eddaarndal

Hier kommt Samstag...bitte!!!

Moojen!! Hef nú ekki frá miklu að segja þar sem laugardagurinn er rétt að byrja, er semsagt enn að passa, Tryggvi kemur heim um þrjúleytið og þá ætla ég að drífa mig eitthvað út með stelpunum af því að ég er aftur að passa í kvöld, vaknaði ellefu og er búin að fara í sturtu og gera mig sæta og fína, var að henda í betty kökur og það ilmar allt húsið af kökulykt, oh ég er svo myndó að það er eiginlega bara viðbjóður, segi ykkur meira á morgun..... tjátjá

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2